Matthías Matthíasson fæddist á Akranesi 24. September árið 1975. Ólst frá 2ja ára aldri upp á Dalvík og á 13.aldursári fluttist hann til Reykjavíkur en býr núna í Kópavogi. Foreldrar Matthíasar eru Matthías Ásgeirsson (f.´38) og Sólveig Sigurðardóttir (f.´43) Matti hefur farið um víðan völl á sýnum ferli. Hann vakti fyrst athygli þegar hann tók þátt í uppsettningu á Hárinu 1994 í Íslensku Óperunni aðeins á 19. aldursári, og Superstar í Borgarleikhúsinu 1995. Síðan þá hefur hann verið iðinn við að skemmta okkur með hljómsveitum eins og Pöpunum, Dúndurfréttum, Buff, Reggae on ice ásamt því að syngja fyrir ekki ómerkari mann en Íþróttaálfinn í Latabæ bæði hér heima og í Amerísku útfærslunni. Auk þess hefur Matti sungið inn á fjöldann allan af hljómplötum. En nú má segja að það hafi verið löngu tímabært að fyrsta sólóplatan liti dagsins ljós, Ólýsanleg er Geisladiskur sem inniheldur 11 lög eftir 4 tónskáld. Fremstan í flokki jafningja má þar telja Magnús Þór Sigmundsson, sem lagði til 4 lög á plötuna, Hreimur Heimisson lagði til 4, og Karl Olgeir Olgeirsson lagði til 2. Eitt tökulag er á plötunni sem er úr söngleiknum Notre Dame De Paris og er samið af Ricchard Cocciante. Nýmæli hjá Matthíasi á þessari plötu er textagerð og á hann 5 texta á þessari plötu. Árið 1994 var Matti tilnefndur sem besti nýliðinn á íslensku tónlistarverðlaununum en varð að láta í minni pokann fyrir Hafnfirsku snillingunum í Botnleðju. Það helsta sem Matthías kemur nálægt fyrir utan tónlistina er, Köfun, Golf, Veiðar og að sinna fjölskyldunni. Matthías er kvæntur Brynju Ólafsdóttur (f. '76), og eiga þau tvo syni, Arnar Pál (f. '02) og Sigurð Pál (f. '05).